Endurskoðun Vestfjarða ehf styrkir Víkari.is 
Mánafell ehf styrkir Víkari.is 
Freydís sf styrkir Víkari.is 
Bjarnarnes ehf styrkir Víkari.is 
 
 
Fræðslumiðstöð Vestfjarða 
Frjálsi lífeyrissjóðurinn styrkir Víkari.is 

Einar K Guðfinnsson styrkir Víkari.is 
Jakob Valgeir ehf styrkir Víkari.is 

Vélvirkinn sf styrkir Víkari.is 
Fiskmarkaður Bolungarvíkur og Suðureyrar ehf styrkir Víkari.is 
Rafverk Alberts Guðmundssonar ehf styrkir Víkari.is 
Páll Helgi ehf styrkir Víkari.is 
Pípulagningarþjónusta Bolungarvíkur ehf styrki Víkari.is 
Snjólfur ÍS-23 styrkir Víkari.is 
Kristinn H. Gunnarsson styrkir Víkari.is 
Verslun Bjarna Eiríkssonar styrkir Víkari.is 
Blakknes ehf styrkir Víkari.is 
Hallgrímur Kristjánsson, málarameistari, styrkir Víkari.is 
Gunnar Leós ÍS-112 styrkir Víkari.is 
Samgönguvefurinn styrkir Víkari.is 
Valdimar L. Gíslason sf. styrkir Víkari.is 
Brún ehf styrkir Víkari.is 
Pólitískar greinar | 25.6.2010 | kristinn H. Gunnarsson
Skuldir þarf að greiða

Þegar einn greiðir ekki skuld sína verður það hlutskipti annars. Ef skuldari þarf ekki að greiða neina verðtryggingu af bílaláni mun hann ekki skila því fé sem hann fékk. Það getur hlaupið á hundruðum milljarða króna sem dómur Hæstaréttar færir milli landsmanna ef ekkert kemur í stað verðtryggingarinnar, sem dæmd var ólögmæt. Skattgreiðendur hafa fengið sendan reikninginn fyrir gjaldþroti Seðlabankans. Tapið er þegar orðið 175 milljarðar króna og gæti orðið meira. Þá hefur ríkið sett 196 milljarða króna í þrjá viðskiptabanka í formi hlutafjár og víkjandi lána. Taki lánafyrirtækin skellinn af dómi Hæstaréttar tapa skattgreiðendur fé sem ríkið hefur lagt fram. Það tap verður verður að sækja með hækkun skatta eða lækkun útgjalda. Stærstu útgjaldaliðirnir eru framlög til heilbrigðismála, menntamála og Tryggingarstofnunar ríkisins. Það verður einhver sem greiðir skuldina að lokum.

 

Íslenskt þjóðfélag er í miklum vanda sem snertir alla. Alltof margir hafa safnað alltof miklum skuldum í alltof langan tíma. Eina ráðið er að semja um skuldirnar, deila þeim niður með sanngjörnum og ábyrgum hætti og greiða þær. Engin lausn fæst með því að efna til átaka milli skuldara, þjóðfélagshópa eða kynslóða. Tilraunir til þess að velta skuldum eins yfir á herðar annars verða aldrei grundvöllur sanngjarnrar og farsællar niðurstöðu. Slíkt háttalag endurspeglar aðeins sérhyggju og ábyrgðarleysi. Afnám verðtryggingar á fjárskuldbindingum og niðurfærslu á höfuðstól lána eins og krafist er mun skerða verulega almenn lífeyrisréttindi og þrengja heiftarlega að ellilífeyrisþegum.

 

Skuldarar tóku sín lán með erlendri verðtryggingu af fúsum og frjálsum vilja. Nóg var framboðið af lánsfé og menn gátu valið lánastofnun, lánsform og verðtryggingu. Erlenda verðtryggingin var eftirsótt vegna þess að vextir voru lágir og að auki þýddi sterkt gengi íslensku krónunnar að verðtryggingin var lítil sem engin í samanburði við innlenda verðtryggingu. Aðilar máls gerðu með sér samning um að skuldarinn endurgreiddi það fé sem hann tók að láni. Verðtryggingin er til þess að svo verði. Lánið hefði ekki staðið til boða ef ekki væri verðtrygging. Það var hverjum skuldara fullkunnugt um. Hæstiréttur gerir engar athugasemdir við verðtryggingu fjárins, heldur form hennar. Samningurinn stendur að öðru leyti. Skuldarinn á áfram að endurgreiða verðmæti lánsins en finna þarf lögmæta verðtryggingu. Það er eðlilegt og sanngjarnt að verðtryggja lánið við vísitölu neysluverðs. Annað helst óbreytt þar með talið vextirnir. Þar með efnir skuldarinn samninginn og greiðir lánið til baka, nýtur áfram lágu vaxtanna og þess að verðtryggingin er lægri. Lánastofnunin tapar nokkru en fær þó lánið endurgreitt að fullu í íslenskum krónum, enda er það úrskurðurinn í málinu að lánið hafi verið að öllu leyti innlent. Segja má að aðilar deili milli sín tapinu á gjaldeyrishruninu með sanngjörnum hætti. Enda voru þeir báðir aðilar að hinu ólögmæta ákvæði og hljóta báðir að bera ábyrgð á því.

 

Fyrir liggur niðurstaða Héraðsdóms þess efnis að mikil hækkun bílaláns sem tryggt var með gengi erlendra mynta leiðir ekki til ógildingar samningsins, en greiðandi taldi að samningurinn væri ósanngjarn og vísaði til 36. laga um samningagerð, umboð og ólögmæta gerninga. Hæstiréttur breytti þessari niðurstöðu ekki, en sneri dómnum við af öðrum ástæðum. Hvernig sem á málin er litið þá er ekki sanngjarnt að skuldari losni við að greiða skuld sína í kjölfar dóms Hæstaréttar og láti öðrum það eftir. Fjárhæðirnar eru svo háar sem um er að tefla að slíkt gengur ekki.

 

Verðtryggð skuld sem breytist í óverðtryggða er skuldatilfærsla frá einum til annars og mismunar skuldurum. Fráleitt er að fella niður verðtryggingu höfuðstóls lána af sumum lánum en viðhalda henni á öðrum. Hægt er að endurmeta grundvöll verðtryggingarinnar ef rök standa til þess en meginreglan verður að vera sú að lántakandi endurgreiði þau verðmæti sem hann fékk að láni. Stórfelldar fjármagns- og eignatilfærslur milli þjóðfélagshópa sundra þjóðinni og magna deilurnar og á því er síst þörf um þessar mundir. Verkefni stjórnvalda er að leiða málin til lykta þannig að sanngjarnt sé og sæmilegur friður skapist um niðurstöðuna þegar frá líður. Það verður ekki auðvelt verk við núverandi aðstæður í þjóðfélaginu þar sem óbilgjarn og öfgakenndur málflutningur er áberandi. En þar mun skipta sköpum að lausnin verði sanngjörn, hófsöm og ábyrg.



Share/Save/Bookmark
 

Pólitískar greinar  |  8. september 2010  20:50  |  Einar Kristinn Guðfinnsson
Meginniðurstaða Endurskoðunarnefndarinnar kemur fram í eftirfarandi orðum í ...
Pólitískar greinar  |  23. ágúst 2010  10:30  |  Kristinn H. Gunnarsson
Í síðustu viku féll merkilegur dómur í Héraðsdómi Reykjaness. ...
Pólitískar greinar  |  9. ágúst 2010  21:21  |  Þórður Már Jónsson
Gagnrýni Björns Vals Gíslasonar, þingmanns VG og skipstjóra í leyfi á Alþingi ...
Pólitískar greinar  |  4. ágúst 2010  20:16  |  kristinn H. Gunnarsson
Framleiðslustyrkjakerfið í mjólkurframleiðslu er komið í slíkt öngstræti ...
Pólitískar greinar  |  3. ágúst 2010  20:26  |  Kristinn H. Gunnarsson
Í Morgunblaðinu í dag er leitað eftir svörum við því hvort ESA hafi gert athugasemdir ...

Pólitískar greinar  |  7. júlí 2010  15:08  |  Einar Kristinn Guðfinnsson
Það liggur fyrir að ekki eru uppi áform um að lækka húshitunar og rafmagnskostnað ...
Pólitískar greinar  |  25. júní 2010  11:20  |  kristinn H. Gunnarsson
Þegar einn greiðir ekki skuld sína verður það hlutskipti annars. Ef skuldari þarf ekki að ...
Pólitískar greinar  |  18. júní 2010  01:12  |  Kristinn H. Gunnarsson
Dómur Hæstaréttar síðastliðinn miðvikudag gerir það ...
Pólitískar greinar  |  9. júní 2010  15:50  |  Kristinn H. Gunnarsson
Kvótakerfið í sjávarútvegi jók skuldir sjávarútvegsins um 400 milljarða ...
Pólitískar greinar  |  26. maí 2010  12:12  |  Kristinn H. Gunnarsson
Fylgið við Besta flokkinn í Reykjavík undanfarnar vikur hefur verið ævintýralegt og ...
Pólitískar greinar  |  14. maí 2010  11:23  |  Einar Kristinn Guðfinnsson
Ég sat á dögunum Útflutningsþing, ákaflega ánægjulegan og fróðlegan ...
Pólitískar greinar  |  14. maí 2010  11:19  |  Kristinn H. Gunnarsson
Þess er krafist að stjórnmálaflokkarnir og einstakir frambjóðendur þeirra upplýsi ...
Pólitískar greinar  |  11. maí 2010  13:34  |  Kristinn H. Gunnarsson
Stjórnmálaflokkarnir eru í litlum metum hjá þjóðinni um þessar mundir. ...
Pólitískar greinar  |  5. maí 2010  00:49  |  Einar Kristinn Guðfinnsson
Sú var tíðin að þingmenn Vinstri grænna létu sig ekki vanta þegar ...
Pólitískar greinar  |  3. maí 2010  10:08  |  Kristinn H. Gunnarsson
Vondar eru tillögur Samgönguráðherra og ríkisstjórnarinnar um niðurskurð á ...


1
Viðburðadagatal
September 2010
S
M
Þ
M
F
F
L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
 
 
Ósafl byggir Bolungarvíkurgöng 
 





Loka