Mánafell ehf styrkir Víkari.is 
Endurskoðun Vestfjarða ehf styrkir Víkari.is 
Freydís sf styrkir Víkari.is 
Frjálsi lífeyrissjóðurinn styrkir Víkari.is 
 
 
Fræðslumiðstöð Vestfjarða 
Bjarnarnes ehf styrkir Víkari.is 

Einar K Guðfinnsson styrkir Víkari.is 
Jakob Valgeir ehf styrkir Víkari.is 

Samgönguvefurinn styrkir Víkari.is 
Fiskmarkaður Bolungarvíkur og Suðureyrar ehf styrkir Víkari.is 
Hallgrímur Kristjánsson, málarameistari, styrkir Víkari.is 
Kristinn H. Gunnarsson styrkir Víkari.is 
Snjólfur ÍS-23 styrkir Víkari.is 
Blakknes ehf styrkir Víkari.is 
Valdimar L. Gíslason sf. styrkir Víkari.is 
Brún ehf styrkir Víkari.is 
Rafverk Alberts Guðmundssonar ehf styrkir Víkari.is 
Páll Helgi ehf styrkir Víkari.is 
Pípulagningarþjónusta Bolungarvíkur ehf styrki Víkari.is 
Vélvirkinn sf styrkir Víkari.is 
Gunnar Leós ÍS-112 styrkir Víkari.is 
Verslun Bjarna Eiríkssonar styrkir Víkari.is 
Pólitískar greinar | 26.5.2010 | Kristinn H. Gunnarsson
Besti flokkurinn endurspeglar fársjúk stjórnmál

Fylgið við Besta flokkinn í Reykjavík undanfarnar vikur hefur verið ævintýralegt og án nokkurra fordæma. Borgarbúar lýsa vanþóknun sinni á stjórnmálaflokkunum og frambjóðendum þeirra með því að lýsa yfir stuðningi við framboð sem hefur þá að háði og spotti. En alvara kjósenda er mikil á bak við þessa bylgju. Þeim er verulega misboðið og ætla sér að sýna það í verki. Í augum kjósendanna eru frambjóðendur Besta flokksins ekki síðri en flokkaframbjóðendurnir nema síður sé. Þeir koma til dyranna eins og þeir eru klæddir og eru að auki lausir við flokkana. Hafa engar skyldur við þá, flokksforystuna, bakhjarlana og aðra sem hafa keypt sér áhrif með fjárframlögum til flokkanna og einstakra frambjóðenda.

Komi til alvörunnar í borgarstjórn munu frambjóðendur Besta flokksins ganga til verka af bestu getu og vafalaust standa sig bærilega. Stjórnmál eru ekki einkamál flokkanna og þekking og geta til þess að vinna verk kjörinna fulltrúa fyrirfinnst utan flokkakerfisins. Það verður enginn héraðsbrestur þótt fulltrúar kerfisins stjórni ekki. En einmitt tilvist flokkakerfisins byggist á hinu gagnstæða, að engir aðrir séu á stjórnmálavellinum.

Þess vegna er kosningafyrirkomulagið samansúrrað utan um flokkana. Öll merki persónukjörs hafa verið jafnt og þétt afmáð á undanförnum áratugum. Svikin voru nýleg loforð um löggjöf um persónukjör fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á laugardaginn. Möguleikar kjósenda á því að velja einstaklinga dregur úr valdi flokkanna. Þegar til kastanna kom vörðu þeir eigin vígi, allir sem einn.

Viðbrögð oddvita vinstri grænna við miklu fylgi Besta flokksins voru lýsandi fyrir afstæðu kerfislægra stjórnmálamanna. Frambjóðandinn var alveg ofan dottinn og stundi í geðshræringu að við yrðum að hugsa um framtíð barnanna okkar. Eru það bara fulltrúar flokkakerfisins sem geta tekið ákvarðanir í þága barnanna okkar? Svona talar blindur maður, sem sér ekki að kjósendur eru að benda honum á að einmitt flokkakerfið er fársjúkt. Kjósendum er orðið það ljóst að forystumennirnir innan kerfisins eru ófærir um að lækna hinn sjúka. Þeir eru sjálfir hinir sjúku.

Það er miklu frekar ástæða til þess að óttast um framtíð barnanna okkar ef flokkakerfið heldur áfram að stjórna bæði landi og borg án þess að innan þess fari fram róttæk hugafarsleg breyting og heiðarlegt uppgjör við störf og verk stjórnmálamanna kerfisins á undanförnum árum. Enginn flokkanna hefur gert hreint fyrir sínum dyrum á afglöpum undanfarinna ára. REI – málið og bankahrunið eru afleiðingar fársjúks flokkakerfis. Allir flokkarnir líða og umbera kosna fulltrúa sem sóttu og þáðu milljónir á milljónir ofan í fjárstyrk í krafti stöðu sinnar. Enginn þeirra virðist hafa talið fjárhæðirnar fram né greitt af þeim skatta og skyldur.

Flokkarnir færast undan því að gefa upp styrktaraðila sína og umbera líka hroka þeirra sem upplýsa ekki til fullnustu fjármál sín. Hvernig getur stjórnmálakerfi verið heilbrigt þegar frammámenn innan þess telja það svo sjálfsagt að ekki þurfi að ræða, að þeir séu hafnir yfir lög og reglur og séu með einkahlutafélögum um prófkjörskostnað undanþegnir sköttum og skyldum eins og líknarfélög eða konungar og aðalsmenn fyrri alda.

Íslensk þjóð hefur ekki efni á því að Sjálfstæðisflokkurinn fái skell í þessum kosningunum sagði einn alþingismaður flokksins. Rannsóknarskýrslan er að þvælast eitthvað fyrir tímabundið sagði annar. Er eitthvað að því að Besti flokkurinn komist til valda?



Share/Save/Bookmark
 

Pólitískar greinar  |  8. september 2010  20:50  |  Einar Kristinn Guðfinnsson
Meginniðurstaða Endurskoðunarnefndarinnar kemur fram í eftirfarandi orðum í ...
Pólitískar greinar  |  23. ágúst 2010  10:30  |  Kristinn H. Gunnarsson
Í síðustu viku féll merkilegur dómur í Héraðsdómi Reykjaness. ...
Pólitískar greinar  |  9. ágúst 2010  21:21  |  Þórður Már Jónsson
Gagnrýni Björns Vals Gíslasonar, þingmanns VG og skipstjóra í leyfi á Alþingi ...
Pólitískar greinar  |  4. ágúst 2010  20:16  |  kristinn H. Gunnarsson
Framleiðslustyrkjakerfið í mjólkurframleiðslu er komið í slíkt öngstræti ...
Pólitískar greinar  |  3. ágúst 2010  20:26  |  Kristinn H. Gunnarsson
Í Morgunblaðinu í dag er leitað eftir svörum við því hvort ESA hafi gert athugasemdir ...

Pólitískar greinar  |  7. júlí 2010  15:08  |  Einar Kristinn Guðfinnsson
Það liggur fyrir að ekki eru uppi áform um að lækka húshitunar og rafmagnskostnað ...
Pólitískar greinar  |  25. júní 2010  11:20  |  kristinn H. Gunnarsson
Þegar einn greiðir ekki skuld sína verður það hlutskipti annars. Ef skuldari þarf ekki að ...
Pólitískar greinar  |  18. júní 2010  01:12  |  Kristinn H. Gunnarsson
Dómur Hæstaréttar síðastliðinn miðvikudag gerir það ...
Pólitískar greinar  |  9. júní 2010  15:50  |  Kristinn H. Gunnarsson
Kvótakerfið í sjávarútvegi jók skuldir sjávarútvegsins um 400 milljarða ...
Pólitískar greinar  |  26. maí 2010  12:12  |  Kristinn H. Gunnarsson
Fylgið við Besta flokkinn í Reykjavík undanfarnar vikur hefur verið ævintýralegt og ...
Pólitískar greinar  |  14. maí 2010  11:23  |  Einar Kristinn Guðfinnsson
Ég sat á dögunum Útflutningsþing, ákaflega ánægjulegan og fróðlegan ...
Pólitískar greinar  |  14. maí 2010  11:19  |  Kristinn H. Gunnarsson
Þess er krafist að stjórnmálaflokkarnir og einstakir frambjóðendur þeirra upplýsi ...
Pólitískar greinar  |  11. maí 2010  13:34  |  Kristinn H. Gunnarsson
Stjórnmálaflokkarnir eru í litlum metum hjá þjóðinni um þessar mundir. ...
Pólitískar greinar  |  5. maí 2010  00:49  |  Einar Kristinn Guðfinnsson
Sú var tíðin að þingmenn Vinstri grænna létu sig ekki vanta þegar ...
Pólitískar greinar  |  3. maí 2010  10:08  |  Kristinn H. Gunnarsson
Vondar eru tillögur Samgönguráðherra og ríkisstjórnarinnar um niðurskurð á ...


1
Viðburðadagatal
September 2010
S
M
Þ
M
F
F
L
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
 
 
Ósafl byggir Bolungarvíkurgöng 
 





Loka