
Könnun á atvinnuþátttöku ungmenna

Vestfjarðastofa stendur fyrir örkönnun varðandi atvinnuþáttöku ungs fólks og námsmanna á Vestfjörðum.
Eins og nafnið gefur til kynna er könnunin stutt og tekur aðeins örfáar mínútur að svara. Í henni er verið að leitast eftir að skoða áhuga ungs fólks fyrir atvinnuáttöku á Vestfjörðum í sumar.
Við hvetjum alla sem er eru í námi og hafa hug á að leita sér að atvinnu á svæðin að svara en með því er verið að auðvelda sveitarfélögum og fyrirtækjum á svæðinu hvaða áherslur skuli leggja þegar tekið verður þátt í sérstöku átaki ríkisstjórnar varðandi sumarstörf fyrir námsmenn 18 ára og eldri.

Hóf Íþróttamanns ársins í Bolungarvík 2019 var haldið í Félagsheimilinu sunnudaginn 12.janúar 2020.
Margir íþróttamenn fengu viðurkenningar og var það Mateusz Klóska sem fékk titilinn íþróttamaður ársins.
Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir tók eftirfarandi myndir.